Barnið merki Barnið

Svefn, matur og bleyjur — allt á einum stað, fyrir báða foreldra.

Skráðu daglegar venjur barnsins á augabragði og deildu þeim með hinu foreldrinu í rauntíma — engin þörf á að spyrja „hvenær svaf hann síðast?“

Heimaskjár Barnsins: matargjöf í gangi, vítamín dagsins merkt við og spá um næsta lúrglugga.

Hannað fyrir svefnlausar nætur

Ekki fleiri minnismiðar eða skilaboð fram og til baka — bara skýr yfirsýn yfir daginn hans.

Skráðu á augabragði

Svefn, matur og bleyjuskipti — hvert með sínum lit og sinni áminningu, skráð með einni snertingu. Ekkert flókið, ekkert stím.

Lyf og vítamín

Hakaðu við D-vítamín og lýsi og sjáðu hver gaf og hvenær. Skráðu lyf, líka eftir þörfum, með kúrum og áminningum — og taktu þau með í skýrsluna fyrir lækninn. Appið skráir bara það sem þú slærð inn; það reiknar aldrei út skammta.

Bæði foreldrar, sama mynd

Þið sjáið sömu skráningu í rauntíma, sama hvort þið eruð heima eða að heiman — enginn þarf að spyrja hvað hitt gerði.

Man hvora hlið

Barnið man sjálfkrafa hvora brjóstahlið þú notaðir síðast, svo þú þarft ekki að reyna að muna það sjálf/ur klukkan þrjú um nótt.

Finnur rétta svefngluggann

Barnið lærir svefnmynstrið hans og stingur upp á besta tímanum fyrir næsta lúr, áður en hann verður ofþreyttur.

Tímastilling á lásskjánum

Fylgstu með svefntíma beint á lásskjánum eða í Dynamic Island — engin þörf á að opna appið til að sjá hvað klukkan er orðin.

Svona lítur það út

Einfalt, hlýlegt og fljótlegt að nota — með annarri hendinni, upp úr svefni.

Í dag-spjaldið: D-vítamín og lýsi merkt við, og sýklalyfjakúr á degi 3 af 7.
Tímabókanir: næsta ungbarnaskoðun, heyrnarmæling og fyrstu bólusetningar.
Parasetamól: hvenær síðast var gefið, af hverjum, og hvenær skráða bilið er liðið.

Barnið er komið í App Store

Ókeypis að hlaða niður. Sæktu appið og byrjaðu að skrá á augabragði.